 |
|
21.12.07
"Ertu búin að öllu fyrir jólin?"
jáháhá - ég hef sjálf notað þessa spurningu talsvert og líka fengið hana síðustu daga?? Í þessu felst að það þurfi að gera þetta og hitt og aðeins meira til svo að jólin komi. Sem er náttl. ekki rétt. En það er svo auðvelt að detta inn í þennan gír, jafnvel þó ég sé markvisst að reyna að gera það ekki. Nú er ég búin að vera lasin og með lumbru síðustu daga og því ekki með fulla orku, langt í frá. Ég er ennþá með einhvern óskrifaðan lista í huganum yfir hluti sem ég "þarf" að gera fyrir mánudagskvöldið. En þetta er svo skrýtið - þetta tekur kannski ekkert allt of mikinn tíma og væri gaman t.d. að gera soldið góða hreingerningu hérna, er ekki með heilsu í það núna en er stanslaust að hugsa um að fara að koma mér að því - það sem ég er að reyna að segja er að orkan sem fer í það að hugsa um að koma sér í gang, þegar maður samt gerir það ekki, er miklu meiri og leiðinlegri að eyða heldur en þegar / ef maður gerir hlutina. Já já já. ER annars komin í jólafrí, ekki vinna fyrr en á nýju ári!!! Aldeilis fínt.
en já, nú er hausverkurinn að plaga mig, held ég leggist aðeins útaf aftur.
E
Posted at 07:00 pm by elfahlin
19.12.07
Það er mikið verið að auglýsa bók sem ber hið hræðilega heiti "Systraflækjan". Það sem fer í taugarnar á mér er þessi staðalímynd sem er dregin upp af því að það sé ALLTAF einhver flækja í samskiptum systra. ÉG á nú tvær systur og hef ekki orðið vör við það. Mikið af systrum í kringum mig og ekki get ég sagt að þetta sé eitthvað sem dominerar umræðuna. Auðvitað koma upp atvik og einstaka krísur í samskiptum systra, en það gerir það í öllum nánum samskiptum. Ég bara þoli ekki svona rugl - og að það skuli vera gerð markaðsvara úr þessu bara pirrar mig. Svona alhæfingar eru ekki bara rugl, heldur ég held að þær geti verið skaðlegar hreint út sagt. Og ekki langar mig að lesa þessa bók.
Smá pirr í gangi. Annars nálgast jólin og ég er alveg ótrúlega slök yfir þeim. Svo sem ansi kvefuð og ekki alveg hress. En ekkert alvarlegt samt.
E
Posted at 09:47 pm by elfahlin
13.12.07
Ég myndi ekki segja að ég væri að kljást við þunglyndi þessa dagana, eiginlega þvert á móti, en hins vegar er alveg ljóst að ég er þreytt, þreytt og þreytt. Þ.e. á morgnanna langar mig bara alls ekki á fætur og finnst ennþá vera mið nótt. Svefnþörfin er klárlega meiri en yfir björtustu sumarmánuðina. Samt er ég ekki að láta eftir mér að leggja mig seinnipartinn eða neitt svoleiðis. Bara enn í mjög djúpum svefni þegar klukkan hringir og hálf meðvitundarlaus á snoozinu í langan tíma. Núna er náttl. dimmasta skammdegið og ég er ekki að hreyfa mig reglulega sem gæti nú hjálpað til að vera orkumeiri, held ég. Ég er að sofa svona 8 tíma á sólarhring og það er ekki að duga mér. Ég hálf öfunda fólk sem þarf ekki að sofa nema svona 6 tíma að meðaltali. Yrði miklu meira úr sólarhringnum hjá manni. En þetta er víst bara svona og til einskis að ætla að svekkja sig á þessu.
Nóg i bili. Ætla að reyna að fara að vinna.
E
Posted at 09:19 am by elfahlin
12.12.07
Jæja, nú eru minna en tvær vikur til jóla. Ég er voðalega róleg yfir þessu öllu. Langar jú að punta soldið heima hjá mér. ER búin að eyða miklum tíma og orku í að hugsa um tiltekt og puntulaði án þess að hafa komið miklu í verk. Á eftir að huga að nokkrum jólagjöfum en það tekur lítinn tíma, ég veit það. Væri sjálfsagt eitthvað meira ef ég væri með fjölskyldu eða eitthvað af jólaboðum. En að sjálfsögðu á þetta ekki að vera einhver kvöð og pína og leiðinlegt ef maður býr sér til fjöll af ókláruðum verkefnum. Jólin koma nefnilega, hvað sem tautar og raular.
Við ætlum hins vegar fjölskyldan suður yfir áramótin. Langt síðan ég hef verið fyrir sunnan yfir áramót. Svo sem ekki meira planað. En ætla að fara að koma mér að vinnu núna.
E
ps. ég er ekki lengur að velta fyrir mér: að vera eða vera ekki alki, það er spurningin
Posted at 09:17 am by elfahlin
10.12.07
Er stundum að velta því fyrir mér, misalvarlega samt, hvort ég sé alki eða ekki? Hætti að drekka fyrir rúmum 7 árum, hafði aldrei reynt mikið að stjórna drykkjunni áður. Ýmislegt óuppgert og flækjur sem ég hef leyst úr að miklu leyti síðan þetta var. Hversu margar af þeim eru/voru afleiðingar af fíknardrykkju veit ég ekki alltaf. Ætla að skella hér upp spurningalista frá hinu ameríska National Council on Alcoholism and Drug Dependence, frá hinni frábæru bók Drinkin. A Love Story e. Caroline Knapp.
- Do you occasionally drink heavily after a disappointment, a quarrel, or when the boss gives you a hard time? já
- When you have trouble or fell under pressure, do you always drink more heavily than usual. nei, ekki alltaf
- Have you noticed that you are able to handle more liquor than you did when you were fist drinking? nei
- Did you ever wake up on the morning after and discover that you could not remember part of the evening before, even though your friends tell you that you did not pass out? já
- When drinking with other people, do you try to have a few extra drinks when others will not know it? held ekki
- Are there certain occasions when you feel uncomfortable if alcohol is not available? mig minnir það já, og líður enn þannig, socíofóbía
- Have you recently noticed that when you begin drinking you are in more of a hurry to get the first drink than you used to be? held það
- Do you sometimes feel a little guilty about your drinking? já
- Are you secretly irritated when your family or friends discuss your drinking? já
- Have you recently noticed an increase in the frequency of your "blackouts"? já (spurning um líkamleg veikindi?? ætla samt ekkert að fullyrða um það)
- Do you often find that you wish to continue drinking after your friends say they have had enough? nei, bara stundum
- Do you usually have a reason for the occasions when you drink heavily? nei
- When you are sober, do you often regret things you have done or said while drinking? já
- Have you tried swithcing brands or following different plans for controlling your drinking? nei
- Have you often failed to keep the promises you have made to yourself about controlling or cutting down on your drinking? nei
- Have you ever tried to control your drinking by making a change of jobs, or moving to a new location? nei
- Do you try to avoid family or close friends while you are drinking? já, stundum
- Are you having an increasing number of financial and work problems? nei
- Do more people seem to be treating you unfairly without good reason? já
- Do you very little or irregularly when you are drinking? nei
- Do you sometimes have the shakes in the morning and find that it helps to have a little drink? nei
- Hae you recently noticed that you cannot drink as much as you once did? já, spurning samt hvort það hafi verið afleiðing af líkamlegum veikindum
- Do you sometimes stay drunk for several days at a time? nei
- Do you sometimes feel very depressed and wonder if life is worth living? já (en líður enn stundum þannig)
- Sometimes after periods of drinking, do you see or hear things that aren´t there? nei
- Do you get terribly frightened after you have been drinking heavily? nei
Svo segja þeir að ef maður svara einhverjum af þessum spurningum játandi þá gæti það þýtt einkenni alkóhólisma. Jákvætt svar við spurningum 1-8 bendir til frumstigs sjúkdómsins, jákvætt svar við spurningum 9-21 þýðir miðjustigið og jákvæð svör við síðustu spurningunum, 22-26 benda til þess að sjúkdómurinn sé á lokastigi.
- Frumstig: 5 - 62,5%
- Miðstig: 5 (4 ef veikindin hafa valdið blackoutum) 31% eða 38%
- Lokastig: 2 (0 ef veikindi og þunglyndi tekin með í reikninginn) 0%, 20% eða 40%
Væri til í að vita hvað aðrir fá útúr þessu prófi. Ég er í svona limbói núna, segi hvorki af né á með mig, frekar pælingin hvort ég þurfi kannski að prófa að drekka til að finna botninn algerlega. Kannski er það bara dæmi um alkóhólískan huga að vera að spá í svona hlutum?? Veit ekki meir. En þetta er víst bara svona. Þetta eru allavega pælingar sem ég fer í alltaf reglulega. Er allavega ekkert að fara að kaupa mér bjór núna til að gera vísindalega tilraun.
e
Posted at 10:13 pm by elfahlin
8.12.07
Var að koma heim úr yndislegri 4 daga ferð til Köben með mágkonu/vinkonu/fyrrver. samstarfskonu/fundafélaga .... já já, við erum mikið saman fyrir utan það að búa í sama húsi og núna er ég að passa börnin hennar. En þetta var svona líka fín ferð. Komum út á mánudag - náttl. vaknað uppúr 4 um morguninn, þannig að á hádegi vorum við ansi myglaðar. Komum í stéttarfélagsíbúðina í Kristianshavn, ég fór í búð og við fengum okkur góða osta og kjötálegg og snæddum það í góðum gír. Og svo lögðum við okkur!!! Íbúðin var soldið óhrein og ekki alveg tilbúin þegar við komum þannig að við snurfusuðum aðeins áður. Svo bara löbbuðum við í bæinn, örfáir kílómetrar í miðbæinn. Fengum okkur að borða á grískum stað, það var ágætt. Löbbuðum svo um og kortlögðum okkur, heilmikið windowshopping í gangi. Fórum svo aðeins á Bobi bar sem er uppáhaldsstaður Dýra og Ríkeyjar frá þeirra dvöl þarna. Höfðum báðar komið þangað áður. Yndislega lítill og hálf subbulegur staður, veggir og loft máluð dumbrauð, lýsingin léleg og þarna mátti reykja. Svona ekta búlla. Fórum svo heim að sofa - í sjónvarpinu var verið að sýna Sex and the City, 1. seríu nokkra þætti í röð og varð það að vana á kvöldin að horfa á nokkra þætti fyrir svefninn. Þriðjudagurinn fór í að versla, ég var nú frekar róleg framanaf, enda eitthvað vesen með fjárhagsstöðuna, hún var verri en ég hafði haldið ;) Rannveig stóð sig hins vegar með sóma og hélt uppi merkjum íslenskra húsmæðra í verslunarferðum með glans. hehe. En þetta tekur þvílíkt á, að þramma fram og til baka, inn og útúr búðum, mikið hljóðáreiti og misleiðinleg tónlist í græjunum í búðunum. Ég held ég verði sjaldan eins þreytt. Enda fórum við tiltölulega snemma heim, upp úr kvöldmat og krössuðum í sófanum. Miðvikudagurinn var soldið svipaður, nema nú byrjaði ég líka að eyða hressilega. Og fékk svo ALVEG nóg - bara meikaði ekki meira. Fór á bókasafnið og svo á kaffihús meðan Rannveig verslaði ótrauð áfram (enda jólagjafir og föt á fjölskylduna um að hugsa). Tókum taxa heim, alveg búnar á því. ÉG var að hugsa um að hitta Akeem sem var úti en meikaði það ekki. En það fyndna var að við lágum andvaka báðar tvær fram eftir nóttu. Rannveig fór svo á fimmtudagsmorgunn að klára jólagjafakaup og á meðan svaf ég á mínu græna. Fórum e. hádegi í kristjaníu, það var soldið skrýtið en líka gaman. hasslyktin yfir öllu. Pöntuðum okkur svo fótsnyrtingu sem er alger snilld að gera í svona borgarferðum. Enduðum daginn á Tivoli ferð, fallegt í jólabúningi. Fórum í tækin aðeins en meira svona bara að njóta stemmningarinnar. Aðeins á bar á eftir (tókst s.s. eitt kvöld að vera komnar heim seint, ekki bara rétt eftir kvöldmat ;) ) og svo var það bara í gær að koma sér útá flugvöll, með allan farangurinn, soldið bras en það hafðist allt. Þetta er þriðji desember í röð sem ég fer í borgarferð, fyrst til Freiburgar, í fyrra til Lux og núna Köben. Næstum orðinn ómissandi þáttur af jólaundirbúningnum hjá mér!!! En ég mæli virkilega með þessu, er gaman og góð tilbreyting. Er núna komin heim, að passa gríslingana á efri hæðinni. Íbúðin er í rúst einhvern veginn og mig langar til að gera fínt og jólalegt. Geri það á eftir eða á morgun. Svo er það nú bara að koma sér aftur í vinnu- og lærdómsgírinn. Verð að vera dugleg í jólafríinu að læra og er alveg sátt við það. E
Ps. Var límmiðið á bílnum mínum þegar ég kem til baka - hef sjö daga til að láta skoða hann. Skelli mér í næstu viku, fæ vonandi bara grænan miða, læt gera við hann og skoða hann svo í janúar. Skoðun 2008 þar með komin. - Vonandi
Posted at 09:48 pm by elfahlin
29.11.07
er farinn að líða fyrir umhirðuleysi mitt alvarlega. Hvers vegna er ég svona mikill slugsi þegar kemur að bílum??? Hann átti að fara í skoðun í júlí!!!!!!!!!! ekki enn farinn. Er að hugsa um að reyna að treina það fram yfir áramót núna ;) þá fæ ég 2009 miða á hann. En ég þarf definitely að hlúa að honum samt.
- brettið farþegameginn er beyglað og þarf að skipta um það
- MJÖG skrýtin lykt er farin að koma
- mætti aðeins pússa húddið, þar sem hamarinn datt ofaná það
- það væri nú idealt að taka til og þrífa bílinn massað
- vantar ný nagladekk eða að láta negla uppá nýtt dekkin sem eru undir núna.
Ágætt að skrifa þetta svona niður, þá blasir blákaldur raunveruleikinn við mér. Fer kannski að gera eitthvað í þessu.
e
Posted at 07:48 pm by elfahlin
22.11.07
jæja, þá er bara kominn fimmtudagur. Mikið líður tíminn hratt. Ég er hins vegar orðin stálhress og bara sátt við lífið og tilveruna í dag. Gærdagurinn var mjög góður, i fleiri en einu tilliti og mikil andans næring sem ég varð aðnjótandi. Yndislegt alveg. Núna er ég að reyna að vinna mér til hita eins og þar stendur, allavega komin með heitt te og er að reyna að pikka þannig að fingurnir á mér vakni af þessum doða.
I gær lærði ég líka muninn á krikket og krokket Segið svo ekki að vinnan mín sé ekki fræðandi.
E
Posted at 12:45 pm by elfahlin
20.11.07
Það er alltaf soldið skrýtið ástandið þegar maður er svona hálflasin, hálfslöpp, hálfómöguleg. Er s.s. heima núna en með bullandi samviskubit, samt er ég ekki manneskja í eitt né neitt. Þannig að ég er heima og ætla bara að lesa og reyna að safna orku og þess háttar. Ekki að ofgera mér þó að það sé heldur betur kominn tími á allsherjarhreingerningu hérna hjá mér. Ekkert svo sem stórt í fréttum. Jú, yndisleg ferðin inní Herðubreiðarlindir á sunnudaginn, svooooooo fallegt og lyftir andanum. Maður ætti að vera duglegri að skella sér af stað í svona ferðir og öðruvísi. Þetta þarf ekki að vera neitt mál og gefur svo mikið. Íslensk náttúra er svo ótrúleg og það eru forréttindi sem ég geri mér ekki alltaf grein fyrir að hafa hana hérna alltumlykjandi. Maður á að þakka það mikla sem manni er gefið en ekki einblína á einhverja örfáa hluti þar sem er "vöntun".
E
Posted at 12:49 pm by elfahlin
17.11.07
já, fór nú bara heim úr vinnunni í gær - var bara lasin. Og er það enn, að einhverju leyti. Ekkert fárlasin, langt í frá en get mest lítið gert. Finn það, ætlaði að fara að gera eitthvað áðan og bara ælan komin upp í háls og leiðindi. ÉG NENNI ÞESSU EKKI. Bara alls ekki. En svona er þetta víst. Lítið við þessu að gera. Eins gott að ég verði bara orðin hress fyrir morgundaginn, þá eru nú aldeilis skemmtilegheit framundan. Svona ef að veðrið verður til friðs og færðin ekki ómöguleg. Það kemur í ljós. Var að horfa á nýjasta þáttin af Grey´s, gaman að því. Þetta er nú orðið soldið útþynnt, það er ekki spurning. En samt gaman að horfa. Fylgist líka með Heroes, finnst þeir betri. Ævintýragenið mitt virkjast þar.
Ætli ég lesi ekki bara ævisögu Matthíasar Jochumssonar í dag, ætti að geta lesið, þó ekki sé nú annað. Og bara gaman að vera til og hana nú!!
E
Posted at 10:54 am by elfahlin
|
|
|
 |